Saturday, October 11, 2008

Sìdustu dagarnir ì Guatemala!

Jaeja, loksins slugsast madur til ad blogga!

Vid erum enn à lìfi, med naumindum tò, hitinn aetlar mann alveg lifandi ad drepa. Vid erum nùna ì Rìo Dulce, á morgun forum vid med bát til Livingstone og tadan er aetlunin ad fara med odrum bát til Honduras, svo tetta eru ad verda seinustu dagarnir okkar ì Guatemala.
En vid erum bùnar ad vera horkuduglegar sìdustu daga, samt varla vid, meira saensku krakkarnir eru snarofvirkir og drosla okkur med ì hvad sem er.

En hèr er nokkud af tvì sem ad vid erum bùnar ad gera:
Klifum eldfjall nàlaegt Antiuga, sàum rennandi hraun sem naerri brenndi af okkur andlitid.
Ferdudumst ì rùgbraudi ì àtta tìma (rassinn er enn aumur).
Konnudum hella (sem voru mest allir hàlffullir af vatni svo vid vorum hàlfsyndandi med kerti ì annarri).
Skodudum Semuc Champey (fòrum ì ,,stutta'' fjallgongu sem endadi med tvì ad vid vorum hangandi utan ì fjallshlìd, myrkrid ad skella à og Jònìna og Jûlìa bàdar à tànum).
Êg (Sunna) fann tarantùlu ì rùminu mìnu (og dó naerrum tvì af hraedslu).
Fòrum til Flores (tad getur varla verid heitara ì helvìti heldur en tar).
Fòrum til Tikal (einn flottasti stadur à jardrìki).
Sogdum bless vid saensku krakkanna (mjog hjartnaem stund, bolvad ad nù verdum vid ad làta reyna à hraedilegu spaenskuna okkar).
Tòkum 1st class rùtu til Rio Dulce ( reyndar var loftkaelingin bilud og myndin sem var synd var Anaconda).

Held ad tetta sè svona mjog gròfur úrdráttur á tví sem ad vid erum búnar ad gera sídustu daga, brjálad fjor og brjálad stud!

En vid eydum daudu stundunum núna í ad bidja fyrir krónunni, tad verdur erfitt ad ferdast ì 5 mánudi í vidbót ef ad tessi vitleysa heldur áfram. Aetli tad endi ekki med ad vid styttum tessa ferd eitthvad, fjárhagurinn gerdi ekki rád fyrir tessari brotlendingu! En eitthvad verdum vid ad gera svo ef einhver hefur magnada tillogu hvad vid getum gert vid líf okkar eftir áramótin,
tà eru allar hugmyndir vel tegnar!

En fer ad segja tetta gott, hitinn er svo mikill ad heilinn er í hálfgerdu losti!

Verid svo dugleg ad senda okkur frèttir!

Kvedja og knús til allra heima.

Sunna og Jònìna.

6 comments:

Anonymous said...

Ef ég held það út að lifa erlendis fram á vorið þá verið þið að halda það út líka hehe... en já, maður notar lausar stundir til að biðja fyrir krónunni. Eruð þið eitthvað nær guði þarna í hitanum heldur en ég, ef svo er þá verið þið að vera extra duglegar að biðja ;)
kv. Gréta Bergrún

Katrin said...

Ég held nú að Dabbi hafi haft meiri áhrif á krónuna en Guð, og seint mun ég vænta einhvers af honum er leiðir til góðs... ;) En endilega biðjið svolítið...

Maður getur nú lifað ótrúlega lengi á hundrað kallinum þarna úti, þ.e. ef þið eruð með járnmaga sem þolir frijoles (baunum) í 3 mál daglega og banana þess á milli :)
Það góða við að koma heim er að kúkurinn fær einhverja ákveðna lögun aftur...

Góða ferð til Hondúras!

Anonymous said...

aaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaarg, eins og alltaf, langt yfir strikið Katrín, við höfum engin not fyrir þessar upplýsingar né löngun til að vita þetta!!!

Anonymous said...

nennidi ad setja inn myndir einhverstadar, gangi ykkur sidan vel Niels Bohr veri med ykkur i anda.

Anonymous said...

já ég sendi ykkur líka blessun Níelsar Bohr og vona að þið eyðið ekki mega langa bréfinu sem ég var að senda ykkur á hotmailið hennar Sunnu. það took for ever to make

raggatagga said...

Hvernig er það er búið að slökkva á veraldarvefnum þar sem þið dveljið núna? Sunna sendi þér kjánafréttir!