Halló halló!
Jaeja, tad hefur verid brálad ad gera í skemtanalífinu undanfarid! Sídustu helgi fórum vid ad lake Atitlan sem ad er stórt vatn hérna, vid gistum eina nótt...og ég er komin med flaer eftir tetta ágaeta hostel! EN annars var rosalega gaman, vid fórum um vatnid í einkabátnum okkar og syntum í vatninu og svona. Svo fórum vid á sunnudaginn til ChiChi en tad er baer hérna sem ad er med staersta markadinn í mid ameríku.Ég var alveg í essinu mínu prúttadi um alla skapada hluti, vid hofum nú reyndar haldi kaupaedinu í lágmarki, adalega af tví ad ég er svo mikill letingi ad ég nenni ekki ad tyngja bakpokann minn meira en komid er!
En í gaer var held ég einn undarlegasti dagur lífs míns. Vid fórum med skólanum í sjálfboda vinnu sem fólst í tví ad vid heimsóttum kvennafangelsid hér í Xela. Vid bjuggumst vid ad sjá ekkert nema eymd og volaedi en nei nei! Tad er víst haldinn árlega dagur fangans hér í Guatemala svo tad var bjálad party med trúdum, kokum og blodrum og svo var rúsínan í pulsuendanum risastór, dandsandi fjólublár smokkur! Svo vid spjolludum og skemmtum okkur med daemdum fongum í gaer. Svo í gaerkvoldi fórum vid á salsanámskeid tar sem ad ég sýndi ótrúlega snilli mína sem felst adalega í tví ad geta ekki med nokkru móti haldi takti hvad sem á dynur! Svo slysadist ég í danskeppni ásamt saenskum strák hérna, Alex, vid héldum ad tad vaeri fullt af porum svo enginn myndi taka eftir okkur en nei! Tad var bara EITT annad par og tad virtist hafa faedst dansandi. Tetta vard tví mjog fyndid en einnig alveg hreint hrikalega vandraedalegt!
En nú er nýjasta planid hjá okkur ad sídasti skóladagurinn er á morgun, svo forum vid til Antigua á sunnudaginn og tar hittum vid saensku krakkana og ferdumst med teim um Guatemala í taepar tvaer vikur. Svo er stefnan tekin á Honduras ad kafa og tadan í skóla til Nigaragua! En tad er allt breytilegt svo vid sjáum til;)
En vid erum enn á lífi, reyndar frekar svefnvana og svolítid timbradar, en tad venst ótrúlega!
Svo verdid tid af fara ad senda fréttir, vid erum alveg sambandslausar og fréttum aldrei neitt!!!
Knús
Sunna og Jónína
Thursday, September 25, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
9 comments:
öss ég ætlaði að segja að jónína gæti ekki haldið takti... hlaut að vera sunna að blogga hehehe ;)
frábært að allt gengur vel og að ég get núna sett komment :P
öfunda ykkur eeeeeendalaust mikið!!
góða ferð til antigua, þar er sko gott að vera!
var ekki söngkeppni þarna sem Sunna gat tekið þátt í? Segið mér ef sú keppni er á dagskrá, þá geri ég undantekningu á miðvikudagsreglunni og kveiki á friðarkertinu. Svo er gaman að heyra að þið séuð enn á lífi, það gleður mitt auma hjarta, en ég skal koma með fréttir að heiman
- 26.sept - Ung kona áreitt af strætóbílstjóra sem sakaði hana um lygar og pretti
- 27.sept - Kvikmyndahús féflétta unga námsmenn
- 25.sept - Ragnhildur Steinunn keyrir nærri niður unga konu fyrir utan Kringluna.
p.s. DJ í Reykavík neita að taka við minnislyklinum með ferðaupplýsingunum ykkar á.
Hahaha. Svo ég bæti við þetta p.s. og vitni orðrétt í plötusnúðinn þegar hann átti að taka við lyklinum: "Ekki gera mér þetta!".
Það er eftirsjá lífs míns að hafa misst af þessum dansandi risasmokki.
hahha.. Snilld maður. Ég öfunda ykkur. Ég reyni að lifa á VIP hanboltaleikjunum sem ég fer á en það fer nú að þynnast eitthvað hjá mér. Dansandi fjólublár smokkur hljómar kómískt.
Hvaða plötusnúður er þetta og Hvað er á þessum minnislykli spyr ég nú bara í sakleysi mínu? hah.
Eg er reyndar buin ad syngja herna en tad var einmitt i tessu agaeta fangelsi, vid joni attum ad syngja saman en tetta endadi tannig ad eg song og jonina flissadi!
Sunna
Þú getur komið og æft þig að dansa með Bjarti þegar þú kemur heim, hann er ekkert að gera grín að manni þó takturinn fari útum þúfur annað slagið :)
Berglind
Á þessum ágæta minnislykli var ásamt ferðaupplýsingunum að finna hið stórgóða gríska eurovisionlag: My secret combination. Þessi plötusnúður var á hverfisbarnum en þeir eru allir svona stuck up í Reykjavík og finnst ekki flott að spila eurovisionlög eða yfirleitt eitthvað annað en eitthvað teknórusl. Fávitar. Passið ykkur líka á DJnum á Oliver, hann er mjög falskur og segist ætla að spila lögin en ætlar sér það aldrei.
Mig langar líka að dansa í gvatemalísku kvennafangelsi innan um fjólubláa risasmokka
www.smartis.bloggar.is
kv. aldís
p.s. ekkert vera samt að segja neinum frá þessari aumu síðu minni
Post a Comment