Tuesday, September 30, 2008

Buenos Tardes!

Erum enn á lífi, best ad taka tad fram svona til ad byrja med:) Fórum frá Xela snemma á sunnudagsmorguninn med "first class" rútunni ógurlegu... Tók okkur dálítid langan tíma ad komast til Antigua, tar sem dálítid af aurskridum hafdi fallid á veginn. En okkur fannst tad ekkert scary, neinei... Vid komuna til Antigua brá okkur heldur en ekki í brún, tar sem okkur hafdi verid lofad sól og blídu, en í stadinn var tarna sannkallad syndaflód, og máttum vid hafa okkur allar vid ad drukkna ekki tarna á rútuplaninu. Tar sem vid stódum svo undir húsvegg skelfingu lostnar, aumkudu sig yfir okkur tveir gaurar frá einhverri upplýsingatjónustu, og fylgdu okkur á tetta líka fína hótel sem kostadi mun minna en oll tau hótel sem minnst var á í lonely planet bókinni gódu.. Urdum vid tví mjog gladar tegar vid fundum dótid okkar enntá á sama stad tegar vid komum aftur uppá hótelherbergi eftir ad hafa brugdid okkur út eftir burger. Mánudagsmorguninn rann reyndar upp bjartur og fagur, og fórum vid og nádum í Jannie, donsku vinkonu okkar úr skólanum, á parcué central tar sem hún stód í umkomuleysi og beid eftir íslensku stelpunum sem eru svo sannarlega med allt á hreinu... Deginum var sídan eitt í alvoru túristagonguferd tar sem sunna lét ljós sitt skína med stórkostlegum guide haefileikum sínum.. Í dag ákvádum vid sídan ad kanna heim haensnarútanna og logdum upp í gífurlega svadilfor til San Pedro ad hitta saensku vini okkar... undarlegt hvad vid erum bara búnar ad kynnast skandinavísku fólki.. En aetlum ss ad vera hérna fram á fostudag, forum sídan aftur til Antigua og ferdumst med saensku krokkunum í tvaer vikur, eda tad er planid núna.

En held ad tetta sé ordid nógu langt í bili:)
Hasta pronto!!!
(verd ad fara ad finna einhvern nýjan frasa á spaensku..)

sólskinsbros og kossar, Jónína og Sunna

6 comments:

Anonymous said...

Hææææææææææææææææææææ unaðspinnar!
Gaman að lesa um ykkur, er búin að vera dugleg að því en ekki eins dugleg að skilja eftir athugasemdir. Hef hvort eð ekkert merkilegt að segja frá sjálfri mér.
Ja, meðan ég man...það snjóaði á Akureyri í dag svo ég vorkenni ykkur ekkert að lenda í smá úða úti í ykkar tuttugu til þrjátíu gráðum.
En farið nú varlega elsku krúttípjásurnar mínar og munið að lifa í lukku en ekki í krukku.
Yfir og út!
Kv. Hildur Ása

Anonymous said...

Gaman að lesa um svaðilfarir ykkar, farið vel með ykkur
Gréta Bergrún ;o)
p.s.hejsan allihoppa til svíanna ;o)

Katrín said...

Fóruð þið til Panajachel við Lago de Atitlan? Við fundum veitingastað þar sem seldi marjuana á pizzuna:) Sá reyndar ekki tilganginn í að éta það...

Litlar fréttir héðan. Það rignir á Spáni og er um 25° hiti. Litla dýrið er í leikskólanum og skilur eitthvað minna en vanalega. Við Gummi erum í háskólanum og skiljum lítið meira ;).

Saludos a la fiesta!

Anonymous said...

þið hafið ekki fengið fötu til að sitja á í hænsnarútunni, eins og Kristjana forðum.?
góða skemmtun.
hvernig væri "hasta la vista"
kv
mamma

Anonymous said...

jæja
væri nú alveg gaman að frétta meira af ykkur...
mjööööög fljótlega!!
hér á klakanum er allt farið til fjandans, ríkisstjórnin og bankarnir drulla upp á bak og við almúginn eigum að vorkenna þeim og brosa og klappa
við erum líka best í því!

Anonymous said...

Sæl frænka. Við fengum uppl. um þessa bloggsíðu hjá Elínu Önnu þegar við vorum að tala við hana á Skybe í kvöld. Máttum til með að heilsa upp á þig. Vonum að þú hafir það sem best og það heyrist enn meira frá þér.

Kveðja, Gísli og Guðbjörg

Ps. En Davíð er nú að redda þessu Kristjana :-)