Tuesday, September 30, 2008

Buenos Tardes!

Erum enn á lífi, best ad taka tad fram svona til ad byrja med:) Fórum frá Xela snemma á sunnudagsmorguninn med "first class" rútunni ógurlegu... Tók okkur dálítid langan tíma ad komast til Antigua, tar sem dálítid af aurskridum hafdi fallid á veginn. En okkur fannst tad ekkert scary, neinei... Vid komuna til Antigua brá okkur heldur en ekki í brún, tar sem okkur hafdi verid lofad sól og blídu, en í stadinn var tarna sannkallad syndaflód, og máttum vid hafa okkur allar vid ad drukkna ekki tarna á rútuplaninu. Tar sem vid stódum svo undir húsvegg skelfingu lostnar, aumkudu sig yfir okkur tveir gaurar frá einhverri upplýsingatjónustu, og fylgdu okkur á tetta líka fína hótel sem kostadi mun minna en oll tau hótel sem minnst var á í lonely planet bókinni gódu.. Urdum vid tví mjog gladar tegar vid fundum dótid okkar enntá á sama stad tegar vid komum aftur uppá hótelherbergi eftir ad hafa brugdid okkur út eftir burger. Mánudagsmorguninn rann reyndar upp bjartur og fagur, og fórum vid og nádum í Jannie, donsku vinkonu okkar úr skólanum, á parcué central tar sem hún stód í umkomuleysi og beid eftir íslensku stelpunum sem eru svo sannarlega med allt á hreinu... Deginum var sídan eitt í alvoru túristagonguferd tar sem sunna lét ljós sitt skína med stórkostlegum guide haefileikum sínum.. Í dag ákvádum vid sídan ad kanna heim haensnarútanna og logdum upp í gífurlega svadilfor til San Pedro ad hitta saensku vini okkar... undarlegt hvad vid erum bara búnar ad kynnast skandinavísku fólki.. En aetlum ss ad vera hérna fram á fostudag, forum sídan aftur til Antigua og ferdumst med saensku krokkunum í tvaer vikur, eda tad er planid núna.

En held ad tetta sé ordid nógu langt í bili:)
Hasta pronto!!!
(verd ad fara ad finna einhvern nýjan frasa á spaensku..)

sólskinsbros og kossar, Jónína og Sunna

Thursday, September 25, 2008

Halló halló!
Jaeja, tad hefur verid brálad ad gera í skemtanalífinu undanfarid! Sídustu helgi fórum vid ad lake Atitlan sem ad er stórt vatn hérna, vid gistum eina nótt...og ég er komin med flaer eftir tetta ágaeta hostel! EN annars var rosalega gaman, vid fórum um vatnid í einkabátnum okkar og syntum í vatninu og svona. Svo fórum vid á sunnudaginn til ChiChi en tad er baer hérna sem ad er med staersta markadinn í mid ameríku.Ég var alveg í essinu mínu prúttadi um alla skapada hluti, vid hofum nú reyndar haldi kaupaedinu í lágmarki, adalega af tví ad ég er svo mikill letingi ad ég nenni ekki ad tyngja bakpokann minn meira en komid er!
En í gaer var held ég einn undarlegasti dagur lífs míns. Vid fórum med skólanum í sjálfboda vinnu sem fólst í tví ad vid heimsóttum kvennafangelsid hér í Xela. Vid bjuggumst vid ad sjá ekkert nema eymd og volaedi en nei nei! Tad er víst haldinn árlega dagur fangans hér í Guatemala svo tad var bjálad party med trúdum, kokum og blodrum og svo var rúsínan í pulsuendanum risastór, dandsandi fjólublár smokkur! Svo vid spjolludum og skemmtum okkur med daemdum fongum í gaer. Svo í gaerkvoldi fórum vid á salsanámskeid tar sem ad ég sýndi ótrúlega snilli mína sem felst adalega í tví ad geta ekki med nokkru móti haldi takti hvad sem á dynur! Svo slysadist ég í danskeppni ásamt saenskum strák hérna, Alex, vid héldum ad tad vaeri fullt af porum svo enginn myndi taka eftir okkur en nei! Tad var bara EITT annad par og tad virtist hafa faedst dansandi. Tetta vard tví mjog fyndid en einnig alveg hreint hrikalega vandraedalegt!

En nú er nýjasta planid hjá okkur ad sídasti skóladagurinn er á morgun, svo forum vid til Antigua á sunnudaginn og tar hittum vid saensku krakkana og ferdumst med teim um Guatemala í taepar tvaer vikur. Svo er stefnan tekin á Honduras ad kafa og tadan í skóla til Nigaragua! En tad er allt breytilegt svo vid sjáum til;)


En vid erum enn á lífi, reyndar frekar svefnvana og svolítid timbradar, en tad venst ótrúlega!

Svo verdid tid af fara ad senda fréttir, vid erum alveg sambandslausar og fréttum aldrei neitt!!!
Knús
Sunna og Jónína

Friday, September 19, 2008

Syndaflódid skollid á.

Gódan og blessadan daginn!
Vid erum enn á lífi hér í landi hinnar grídarlegu rigningar, vid munum allavegna ekki deyja úr torsta í brád!
Fyrir utan regnid er allt fínt, erum búnar ad kanna tó nokkud af cirka milljón kaffihúsum sem eru hér í Xela (og audvitad nokkra bari líka...) og erum ordnar svo flinkar í spaenskunni ad enginn munur heyrist á okkur og teim innfaeddu....eda ekki.
EN hér er ekkert nema eintóm gledi og kannski svolítid af baunum og tortillaskokum.
Í kvold er altjódlegur matur í skólanum okkar svo vid erum ad fara ad elda grjónagraut handa lidinu úr mjólk sem ad vid keyptum af markadnum ádan, en mjólkin hér er seld í pokum! Gaman verdur ad sjá hvort vid fáum ekki oll matareitrun af tví....
EN svo verdur kíkt eitthvad út á lífid (í fyrsta skiptid...hóst....) en varla lengi tví ad vid turfum ad vera maettar í skólann kl 7 í fyrramálid til ad leggja af stad í 2 daga ferdalag svo vid verdum orugglega grídarlega hressar!
En svo eigum vid ad koma til baka á sunnudagskvold og svo er tad aftur skóli á mándudaginn.
Svo tad er nóg ad gera hjá okkur, lífid er yndislega trátt fyrir svolítinn kuldahroll og tó nokkud mikla bleytu!
Hasta Pronto
Sunna og Jónína.

Saturday, September 13, 2008

Erum enn á lífi!

Allt er búid ad ganga framar vonum hjá okkur stollum fram ad tessu, misstum ekki af neinni flugvél og vorum ekki raendar á leidinni! vúhú! Konan sem vid gistum hjá er ekkert nema yndislegheitin, risa herbergi sem vid fengum, og rosa gódur matur. Svo er stór plús ad hún talar smá ensku, tar sem annars vaeri tetta eilítid vandraedalegt..
Fyrsti skoladagurinn okkar var í gaer, og for tad naer e¡ngongu fram a spaensku, tar sem vid stodum okkur med stakri prýdi..ehemm.. Svo í gaerkvoldi bordudum vid tjodlegan mat med hinum nemendunum í skólanum, og komumst ad tví ad tad eru ekki bara vid sem kunnum enga spaensku ádur en vid komum hingad. Samnemendur okkar eru ótrúlega fínir, flestir frá skandinavíu, svítjód, danmorku og svo framvegis. Gellunni frá danmorku fannst alveg frábaert tegar vid forum ad tja okkur a okkar grídarlega gódu donsku, gaeti ekki verid mikid hamingjusamari yfir ad íslendingar turfi ad laera tetta.
En já, í kvold erum vid semsagt ad fara á fótboltaleik med nýju vinum okkar, Siudad Guatemala City vs. Quetzaltenango. Vid forum meira ad segja a markadinn í og keyptum okkur boli í tilefni dagsins. Vid verdum ekkert lítid flottar!
En já, semsagt bara eintóm gledi í Guatemala,

Hasta Pronto!
Sunna og Jónína